Árskóli auglýsir eftir umsjónarkennara út skólaárið

Árskóli á Sauðárkróki  óskar eftir að ráða umsjónarkennara út skólaárið 2013-2014. Um er að ræða 100% starf sem er laust nú þegar. Kennslugreinar eru danska, enska, lífsleikni, stærðfræði og íslenska. Viðkomandi þarf að hafa kennarapróf (leyfisbréf), góða skipulagshæfileika, mikla hæfni í mannlegum samskiptum og reynslu af teymisvinnu. Einnig er reynsla af umsjón með bekk æskileg. Áhugi á þróunarstarfi er einnig mikilvægur eiginleiki, þar sem skólastarfið byggir á mikilli samvinnu milli kennara.

Starfið hentar konum jafnt sem körlum. Umsóknarfrestur er til 6. nóvember 2013. Sækja skal um í Íbúagátt sveitarfélagsins eða á heimasíðu sveitarfélagsins. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi KÍ og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Upplýsingar um starfið gefur Óskar G. Björnsson skólastjóri Árskóla í síma 455-1100.

Fleiri fréttir