Ásbjörn og Einar á opnum stjórnmálafundum

Einar Kristinn Guðfinnsson alþingismaður efnir til almenns stjórnmálafundar í Ljósheimum Skagafirði, í dag  fimmtudaginn 9. febrúar. Fundurinn hefst klukkan 20. Jafnframt efnir Ásbjörn Óttarsson alþingismaður  til fundar í Sjálfstæðishúsinu á Blönduósi á sama tíma. Fundirnir eru opnir öllum.

Á undanförnum dögum hafa þeir Ásbjörn og Einar haldið fjóra opna stjórnmálafundi víðs vegar um Norðvesturkjördæmi. Fyrsti fundurinn var haldinn á Patreksfirði sl. mánudag, þar sem þeir voru báðir mættir. Á þriðjudag, var Einar á opnum fundi á Reykhólum og Ásbjörn á Hólmavík. Í gærkvöldi miðvikudagskvöld voru þeir þingmennirnir á opnum fundi á Hvammstanga.

Jafnframt þessu hafa þeir heimsótt vinnustaði og einnig fundað með sveitarstjórnum og hófu þær heimsóknir í Stykkishólmi.

Fleiri fréttir