Ásgeir og Júlíus flytja Wrecking Ball
Ábreiða Ásgeirs og Júlíusar af laginu Wrecking Ball með Miley Cyrus hefur vakið athygli hérlendis en þeim tekst einstaklega vel upp með flutninginn. Myndband af flutningi Ásgeirs og Júlíusar var birt í gær á vefnum giel.vara.nl, en lagið fluttu þeir í þættinum Giel á hollensku sjónvarps- og útvarpsstöðinni VARA.
Síðar í dag verða þeir svo staddir á verðlaunahátíð EBBA-verðlaunanna 2014 þar sem þeir koma fram með hljómsveit sinni, Ásgeir. Ásgeir er meðal þeirra sem hljóta verðlaunin að þessu sinni, en verðlaunahafarnir eru tíu talsins. Á vef verðlaunanna, www.europeanborderbreakersawards.eu, segir jafnframt að á verðlaunahátíðinni verður tilkynnt um sigurvegara "the Public Choice Award" en þau verðlaun byggjast á kosningu almennings.
Samkvæmt upplýsingum á vef verðlaunanna verður bein útsending frá verðlaunahátíðinni á YouTube.com og hefst hún kl. 18:00 á staðartíma, eða kl. 17:00 á íslenskum tíma. Hátíðinni verður jafnframt sjónvarpað á nokkrum stöðvum í Evrópu. Þá verður einnig sýnt beint frá hátíðinni á vef RÚV, sjá hér.
Norðanátt.is segir frá þessu.