Ásgeir Trausti á plötu vikunnar á Rás 2
Ásgeir Trausti á plötu vikunnar á Rás 2 en hún heitir Dýrð í dauðaþögn og er fyrsta breiðskífa tónlistarmannsins. Á Rúv.is segir að Ásgeiri Trausti hefur komið eins og stormsveipur inn í íslenskt tónlistarlíf og hann var aðalgestur Rokklands í gær.
„Frægðarsól Ásgeirs Trausta reis hratt í vor þegar hann sló í gegn með laginu Sumargestur í sjónvarpsþættinum Hljómskálanum. Ásgeir sendi svo í kjölfarið frá sér lagið Leyndarmál sem notið hefur gríðarlegrar hylli landsmanna í sumar en það hefur t.a.m. verið 13 vikur á Vinsældalista Rásar 2, þ.á.m. fjórar í efsta sætinu,“ segir á Rúv.is.
Ásgeir Trausti er alinn upp á Laugarbakka í Húnaþing vestra, af foreldrum sínum þeim Einari Georg Einarssyni kennara og Pálínu Fanney Skúladóttur kennara og organista.
Breiðskífa Ásgeirs Trausta inniheldur 10 lög og kom út þann 11. september sl.
Lagalisti:
1. Hærra
2. Dýrð í dauðaþögn
3. Sumargestur
4. Leyndarmál
5. Hljóða nótt
6. Nýfallið regn
7. Heimaförin
8. Að grafa sig í fönn
9. Samhljómur
10. Þennan dag