Ásgeir Trausti gerir samning við virta umboðsskrifstofu

Ásgeir Trausti hefur gert samning við umboðsskrifstofuna William Morris Agency um bókanir tónleika hans í Evrópu, Bandaríkjunum og víðar.

Samkvæmt Mbl.is er samningurinn stórt skref fyrir tónlistarmanninn unga en meðal þeirra sem William Morris skipuleggur tónleikaferðir fyrir eru Lady Gaga, Pearl Jam og Björk.

„William Morris er ein virtasta og elsta bókunarskrifstofa í heiminum. Við höfum verið að vinna með þeirra fólki í London og New York undanfarið við að plana tónleika Ásgeirs Trausta á næsta ári,“ segir María Rut Reynisdóttir, umboðsmaður Ásgeirs Trausta, í samtali við Mbl.is.

Fleiri fréttir