ASÍ tók jákvætt í erindi Sveitarfélagsins Skagafjarðar um samstarf við uppbyggingu íbúðarhúsnæðis

Ráðhús Sveitarfélagsins Skagafjarðar á Sauðárkróki. Mynd/BÞ
Ráðhús Sveitarfélagsins Skagafjarðar á Sauðárkróki. Mynd/BÞ

Á fundi byggðarráðs Svf. Skagafjarðar þann 17. mars sl. kom fram að sveitarfélagið hefði í hyggju að óska eftir formlegu samstarfi við ASÍ um uppbyggingu á íbúðarhúsnæði fyrir tekjulágar fjölskyldur og einstaklinga í Skagafirði. Var það gert í ljósi nýlegrar viljayfirlýsingar Alþýðusambands Íslands og Reykjavíkurborgar um uppbyggingu á íbúðarhúsnæði í borginni. Óskað var eftir samstarfinu á sama grundvelli til að bæta úr brýnum húsnæðisskorti í Sveitarfélaginu Skagafirði.

Á fundi byggðarráðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar í gær kom fram að vel hafi verið tekið í erindið af hálfu ASÍ. „Byggðarráð fagnar skjótum og jákvæðum svörum Alþýðusambands Íslands við óskum Sveitarfélagsins Skagafjarðar um samstarf um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Skagafirði. Um afar mikilvægt verkefni er að ræða í þá átt að leysa úr þeim brýna húsnæðisvanda sem fyrir er í sveitarfélaginu,“ segir í fundargerð

Sveitarstjóra var falið að koma á fundi byggðarráðs með forsvarsmönnum ASÍ og stéttarfélögunum í Skagafirði.

Fleiri fréttir