Atvinnulífssýningin Lífsins gæði og gleði 2012

Sveitarfélagið Skagafjörður stendur fyrir atvinnulífssýningu á Sauðárkróki við upphaf Sæluviku, dagana 28. - 29. apríl nk. Sýningunni er einkum ætlað að draga fram þann fjölbreytileika sem er í atvinnulífi, félagsstarfsemi og menningarlífi í Skagafirði.

Sýningin sem haldin er í samvinnu við Skagafjarðarhraðlestina og fleiri aðila er öllum opin. Skipulag hennar verður í stórum dráttum með sama sniði og var á sambærilegri sýningu og var haldin vorið 2010, undir sömu yfirskrift.

Fyrirtæki, félög, stofnanir og aðrir sem hafa vöru, þjónustu, hugmynd eða eitthvað slíkt sem viðkomandi vill koma á framfæri eru hvött til að taka þátt í sýningunni. Verði á básum verður stillt í hóf. Stefnt er að því að halda málþing um atvinnumál, menningarmál og þjónustu  við íbúa í Skagafirði samhliða sýningunni.

Formleg skráning á sýninguna hefst í næsta mánuði en samkvæmt tilkynningu frá Sveitarfélaginu Skagafirði eru allar hugmyndir um framkvæmd hennar og möguleg viðfangsefni á málþingið sem haldið verður samhliða sýningunni vel þegnar.

Undirbúningur og skipulag verður í höndum starfsmanna Markaðs- og þróunarsviðs sveitarfélagsins en þeir eru Áskell Heiðar Ásgeirsson (heidar@skagafjordur.is) og Sigfús Ingi Sigfússon (sigfus@skagafjordur.is ).

Fleiri fréttir