Auglýst eftir skólastjóra Varmahlíðarskóla
feykir.is
Skagafjörður
14.06.2013
kl. 15.57
Vegna mistaka hjá Nýprent fór auglýsing vegna umsóknar stöðu skólastjóra Varmahlíðarskóla ekki í síðasta Sjónhorn. Auglýsingin birtist nú hér á Feyki.is og á heimasíðu Svf. Skagafjarðar. Umsóknarfrestur er til 19. júní nk. Leitað er að öflugum og framsýnum leiðtoga sem er tilbúinn til að leiða þróttmikið skólastarf og taka þátt í eflingu skólasamfélagsins í héraðinu.
Beðist er velvirðingar á þessum mistökum.
