Bæta merkingar á Kjalvegi

Þorvaldur Böðvarsson hjá Vegagerðinni á Hvammstanga sagði í samtali við Ríkisútvarpið að ferðamennirnir sem misstu bíl sinn út í skurð á Kjalvegi á dögunum voru ekki á vegarkafla sem er ófær og lokaður. Þorvaldur segir að leyfilegt sé að keyra Kjalveg upp að Blöndulóni, vegurinn þangað sé öllu jafna í ágætu ásigkomulagi. Hann versni hins vegar mikið suður frá lóninu.

Vegagerðin hefur í kjölfar slyssins sett upp lokunarskilti við Blöndulón og skoðar hvort þörf sé á enn skýrari merkingu á svæðinu og á veginum niður við þjóðveg. Húni.is segir frá þessu.

Fleiri fréttir