Bárður ánægður með heimaleik
Eins og greint var frá hér á Feyki.is í gær fékk Tindastóll heimaleik á móti Njarðvík þegar dregið var í 8 – liða úrslit Poweradebikarsins. Bárður Eyþórsson er ánægður með dráttinn og sérstaklega að hafa fengið heimaleik.
-Njarðvík er með ungt og mjög svo efnilegt lið og verða klárlega erfiðir viðureignar. Hvað framhaldið varðar þá vonast ég til að liðið haldi áfram að vaxa þannig að við náum að toppa á réttum tíma. Við erum enn að bæta okkur og vonast ég til að svo verði áfram.
Tindastóll lék við Þór Þorlákshöfn sl. sunnudagskvöld og innbyrti góðan sigur í lokin og var Bárður að vonum ánægður með sína menn. -Þetta var bæði jafn og hörkuleikur sem við náðum að klára í lokin. Mér fannst við vera nokkuð frískir í leiknum og það var glampi í augum á mönnum. Þór er með flott lið sem hefur verið að skora nokkuð mikið í vetur. Við erum búnir að spila við þá tvisvar í vetur og náð að halda þeim í um 75 stigum og það verður að segjast að varnarleikurinn hefur verið góður og erum við enn að bæta okkur þar.
Sóknarlega erum við að gera nægilega mikið til að skora um 80 stig í leik. Við erum alltaf að reyna að bæta okkur sóknarlega og það er einnig að mínu mati að lagast. Við leggjum mikið uppúr því að það sé hreyfing á boltanum og að sem flestir taki ábyrgð, segir Bárður sem er ánægður með framlag sinna leikmanna. -Í síðasta leik spiluðum við á níu mönnum og fengum við stig frá þeim öllum. Bekkurinn skilaði okkur 28 stigum og það segir okkur hversu mikil breidd er í liðinum.
Það vakti eftirtekt að Bárður skartaði forláta Arsenalpeysu merktri hinum brottflutta Fabregas þegar hann stjórnaði liðinu sl. sunnudagskvöld og spurðist það út að ástæðan væri sú að hann hafi tapað veðmáli.
-Það er rétt að ég var í Arsenal-peysunni vegna þess að ég tapaði veðmáli við Stebba vin minn. Við unnum leikinn og það er aldrei að vita nema ég verði bara áfram í treyjunni. En það er alveg ljóst að ég þyrfti þá að fara í Þreksport eða mæta betur á æfingar hjá Molduxum vegna þess að peysan virðist hafa hlaupið aðeins í þvotti, sagði þjálfarinn sporskur.