Basar og handverkssýning

Nú er komið að hinum árlega basar Félags eldri borgara. Einnig verður handverkssýning á munum þjónustuþega í Dagdvöl aldraðra. Kaffisala verður á staðnum. Opið verður milli kl. 14:00 og 17:00 sunnudaginn 24. nóvember 2013 í félagsaðstöðu dvalarheimilisins.

Þeir sem vilja hafa söluborð á basarnum hafi samband við Auði Ketilsdóttur í síma 467-1014 eða 863-1014. Vakin skal athygli á því að söluborðin eru einnig opin öðrum aldurshópum þó þau séu á vegum Félags eldri borgara. Auk handverks á basarinn væri vel þegið eitthvað matarkyns eins og t.d. sultur, egg og brauðmeti.

Fleiri fréttir