Bestu og efnilegustu leikmennirnir verðlaunaðir
Um síðustu helgi voru haldnar uppskeruhátíðir fyrir fjórða-, þriðja- og meistaraflokka Tindastóls í knattspyrnu og veitta viðurkenningar að venju. Hjá meistaraflokki karla þótti Atli Arnarson bestur en hjá konunum Bryndís Rut Haraldsdóttir. Meistaraflokkarnir komu saman á laugardagskvöldið og hlutu eftirfarandi leikmenn viðurkenningar:
M.fl.karla
- Besti leikmaðurinn: Atli Arnarson
- Efnilegasti leikmaðurinn: Konráð Freyr Sigurðsson
- Markahæsti leikmaðurinn: Chris Tsonis
Efnilegasta parið, Hugrún og Konni.
M.fl.kvenna
- Besti leikmaðurinn: Bryndís Rut Haraldsdóttir
- Efnilegasti leikmaðurinn: Hugrún Pálsdóttir
- Markahæsti leikmaðurinn: Leslie Briggs
Flottur hópur sem stendur að knattspyrnunni á Sauðárkróki.
Á föstudagskvöldið var uppskeruhátíð fyrir 3. og 4. flokka haldin á Mælifelli og fengu eftirfarandi viðurkenningar:
3.fl.karla
Besti leikmaðurinn: Ágúst Friðjónsson og Leó Snær Konráðsson
Bestu ástundun fær svo Arnar Ólafsson.
Tveir magnaðir og upprennandi knattspyrnumenn framtíðarinnar.
3.fl.kvenna
- Besti leikmaðurinn: Fanney Konráðsdóttir
- Efnilegasti leikmaðurinn: Kolbrún Ósk Hjaltadóttir
- Besta ástundun: Hrafnhildur Ósk Halldórsdóttir
4.fl.karla
- Besti leikmaðurinn: Halldór Broddi Þorsteinsson
- Efnilegasti leikmaðurinn: Konráð Karel
- Besta ástundun: Jónas Aron Ólafsson
Kvennaknattspyrnan á Sauðárkróki hefur vegnað vel og er svo komið að fleiri stelpur stunda fótbolta en strákar hjá Tindastóli.
4.fl.kvenna
- Besti leikmaðurinn: Laufey Harpa Halldórsdóttir
- Efnilegasti leikmaðurinn: Kristrún María Magnúsdóttir
- Besta ástundun: Vigdís Edda Friðriksdóttir
Myndir: Ómar Bragi.