Bíbí heiðursfélagi Léttfeta
Á afmælisfagnaði Hestamannafélagsins Léttfeta sem haldinn var sl. laugardagskvöld var Friðbjörg Vilhjálmsdóttir, sem alla jafna gegnir nafninu Bíbí, gerð að heiðursfélaga Léttfeta. Var þessu innilega fagnað af viðstöddum með standandi lófaklappi enda allir þar inni fengið að njóta hennar sjálfboðaliðsstarfa í gegnum tíðina.
Þeir sem sótt hafa atburði hestamannafélagsins Léttfeta á Sauðárkróki þar sem boðið er upp á kaffi og bakkelsi hvort sem það er í Tjarnabæ eða áður fyrr á Vindheimamelum hafa eflaust tekið eftir því að Bíbí er aldrei langt undan. Eins var hún ein af þeim hvatamönnum sem vildu byggja félagsheimilið Tjarnabæ og í viðtali við Feyki árið 2010 sagði hún að af því hún lét skoðanir sínar í ljós á því, þá var hún kosin í bygginganefnd og var gerð að ritara hennar.
-En það er ekki nóg að byggja húsið það verður líka að reyna að reka það þannig að þá var mér dembt í hússtjórnina sem ég er búin að vera í síðan og er afskaplega stolt af því að hafa gefið alla mína vinnu þarna niðurfrá, sagði Bíbí í viðtalinu og sagðist hætta ef farið yrði að borga fyrir vinnuna í Tjarnabæ enda grundvöllurinn þá farinn fyrir því að rekstur hússins standi undir sér.