Bíll varð alelda á Garðssandinum
feykir.is
Skagafjörður
13.11.2013
kl. 08.31
Bíll brann til kaldra kola á Garðssandinum í gær en rétt upp úr hádegi bárust Brunavörnum Skagafjarðar boð frá Neyðarlínunni um að eldur væri laus í bifreið sem stödd væri u.þ.b. fimm mínútna akstur austur af Sauðárkróki. Sendur var dælubíll, tankbíll og sjúkrabíll á staðinn og að sögn Vernharðs Guðnasonar var bíllinn alelda er slökkviliðið kom að en vel gekk að slökkva í flakinu.
Ökumaður var einn í bílnum og var fluttur til skoðunar á Heilbrigðisstofnunina á Sauðárkróki þar sem hann hafði andað að sér reyk við að bjarga föggum sínum úr bílnum.