Bjarni Har á RIFF
Heimildamynd Árna Gunnarssonarum kvikmyndagerðarmanns um hinn kunna kaupmann á Sauðárkróki, Bjarna Har, verður frumsýnd á RIFF kvikmyndahátíðinni sem fram fer í Reykjavík dagana 26. september til 6. október. Þá er ætlunin að hafa nokkrar bíósýningar á Sauðárkróki.
Myndin hefur verið í vinnslu í fjögur ár og er Árni ánægður með útkomuna enda um skemmtilegt myndefni að ræða. Þá er ætlunin að senda myndina til þátttöku í Eddunni.
Heimildarmynd um Bjarna Har á leið á RIFF kvikmyndahátíð Á myndinni eru; Stefán Friðrik, Eiríkur Hilmis, Bjarni Har og FrikkiFrikk.