Bjartsýnir á að ekki verði mikið kal

Í Morgunblaðinu í dag er fjallað um ástand túna í Eyjafirði, en þar er ennþá mikill snjór og því lítið hægt að spá fyrir um kal í túnum fyrr en þau koma undan snjó. Sem kunnugt er var mikið um kal þar og í austanverðum Skagafirði í fyrravor, enda mikill snjór fram eftir öllu vori.

Í Morgunblaðinu er haft eftir Eiríki Loftssyni, ráðunaut og ábyrgðarmanni í jarðrækt hjá RML að menn hafði verið uggandi í Hjaltadal og Óslandshlíð þar sem ástandið var verst í fyrra. „Erfitt er að fullyrða um útkomuna nú, svæðin eru nýkomin undan klaka, en bændur eru bjartsýnir á að ekki verði mikið kal, ef það verður þá eitthvað, sagði Eiríkur í samtali við Morgunblaðið.

Fleiri fréttir