Bjartsýnn á breytt fjárlög
Fulltrúar sveitarstjórnar Svf. Skagafjarðar með Ástu Pálmadóttur sveitarstjóra og Stefán Vagn Stefánsson formann byggðaráðs í fararbroddi, hafa í vikunni fundað með þingmönnum kjördæmisins, ráðherrum og þar á meðal forsætisráðherra. Rædd eru ýmis mál sem tengjast stjórnvöldum og byggðalaginu eftir að fyrstu drög að fjárlögum voru opinberuð.
Stefán Vagn segir að allir viðmælendur sýni málefnum þeirra skilning og er bjartsýnn á að niðurstaða fjárlaganna verði önnur þegar yfir lýkur.
-Ég hef trú á því að þessi niðurstaða verði skoðuð hvað varðar Skagafjörð. Þingmenn og ráðherrar hafa lýst sig reiðubúna til að vinna að ýmsum hagsmunamálum okkar er varða t.d Heilbrigðisstofnunina, Háholt og fleirum, segir Stefán Vagn sem sitja mun fleiri fundi með ráðamönnum í dag.