Björguðu kindum úr Kolugljúfrum

Björgunarsveitin Húnar kom til bjargar tveimur kindum sem lentar voru í sjálfheldu neðst í Kolugljúfrum í Víðidal í gærkvöldi. Að sögn Hallfríðar Ólafsdóttur í Víðidalstungu höfðu þær líklega verið þarna á þriðja sólarhring þegar veiðimenn og leiðsögumenn í Víðidalsá gerðu aðvart, en þeir höfðu orðið varir við þær tvo daga í röð.

Hallfríður segir björgunarsveitina Húna hafi unnið frábært starf við að bjarga kindunum. Önnur þeirra var líklega frá Víðidalstungu en Hallfríði var ekki kunnugt um hvaðan hin væri. Þær urðu frelsinu fegnar og mjög svangar þegar þeim var náð.

Meðfylgjandi mynd tók Hallfríður á síma, en á myndinni sést hvar sigmenn eru komnir niður í skotið þar sem þær voru  búnar að híma í alla vega tvo daga þegar athugulir veiðimenn létu vita af þeim.

Fleiri fréttir