Brekkulækur bær mánaðarins

Í fréttatilkynningu frá Ferðaþjónustu bænda segir að Brekkulækur í Miðfirði í Vestur-Húnavatnssýslu hafi verið útnefndur bær mánaðarins nú í maí. Í byrjun hvers mánaðar er valinn einn ferðaþjónustubær innan vébanda Ferðaþjónustu bænda sem hefur staðið sig sérstaklega vel á sviði gæða - og umhverfismála, vöruþróunar og í þjónustu við viðskiptavini. Þá er einkum horft til sérstöðu staðarins og nýbreytni á sviði þjónustu og afþreyingar. Val á bæ mánaðarins byggist á umsögnum gesta og mati starfsfólks skrifstofu Ferðaþjónustu bænda.

Fleiri fréttir