Bryndís Rut heldur hreinu hjá íslenska landsliðinu

Stelpurnar í U19 unnu annan stórsigur í dag í undankeppni EM en leikið er í Búlgaríu.  Mótherjarnir í dag voru frá Slóvakíu og unnu okkar stelpur öruggan sigur, 5 - 0.  Með þessum sigri er íslenska liðið öruggt með sæti í milliriðlum. Bryndís Rut Haraldsdóttir frá Brautarholti, markmaður meistaraflokks Tindastóls, stendur á milli stanganna og hleypir engum bolta fram hjá sér.

Á vef KSÍ segir að stelpurnar hafi byrjað af sannkölluðum krafti og Telma Hjaltalín Þrastardóttir skoraði fyrsta mark leiksins strax á fyrstu mínútu.  Fyrirliðinn Hildur Antonsdóttir bætti svo öðru marki við á 10. mínútu og mörkin urðu ekki fleiri í fyrri hálfleiknum.  Telma bætti öðru marki sínu við á 52. mínútu og þær Svava Rós Guðmundsdóttir og Elín Metta Jensen bættu við mörkum áður en leikurinn var allur.

Þetta er annar 5 - 0 sigur liðsins á mótinu en heimastúlkur í Búlgaríu fengu sömu útreið á laugardaginn. Lokaleikurinn er gegn Frökkum á fimmtudaginn og ræðst þá hvaða þjóð endar í efsta sæti riðilsins.  Frakkar lögðu Búlgari í dag, 7 - 0, og eru því í efsta sæti á markatölu.

Fleiri fréttir