Bryndís Rut til Búlgaríu

Bryndís Rut Haraldsdóttir markmaður meistaraflokks kvenna í Tindastóli er á leið til Búlgaríu síðar í mánuðinum þar sem landslið Íslands U19 kvenna leikur í undankeppni EM. Riðill Íslands verður leikinn dagana 21. - 26. september en mótherjar Íslendinga eru, auk heimastúlkna, Slóvakía og Frakkland. Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari hefur séð það sama og aðdáendur Tindastóls í sumar enda hefur Bryndís Rut staðið sig afskaplega vel í markinu.

Það hefur verið í nógu að snúast hjá Hugrúnu í sumar enda hefur hún leikið bæði með þriða og meistaraflokki Tindastóls.

Þá hefur Úlfar Hinriksson, landsliðsþjálfari U17 kvenna, valið hóp til æfinga um komandi helgi og er Hugrún Pálsdóttir leikmaður 3. og meistaraflokks Tindastóls þar á meðal. Þessar æfingar eru hluti af undirbúningi fyrir keppni í milliriðlum EM en íslenska liðið mun leika í Rúmeníu um mánaðarmótin.

Fleiri fréttir