Búið að manna Útsvarslið Skagafjarðar

Nú dregur að því að keppni í Útsvari hefjist í Ríkissjónvarpinu. Lið Skagafjarðar stóð sig mjög vel síðasta vetur og komst í undanúrslit. Er það besta útkoma fram til þessa hjá okkar fólki. 

Það var því augljóst að leita skyldi aftur til Guðrúnar Rögnvaldardóttur, Guðnýjar Zoega og Sveins Margeirssonar, um að vera fulltrúar okkar í keppninni.  Þetta ágæta fólk ætlar að taka áskoruninni og bera uppi merki Skagfirðinga. Skagafjörður.is segir frá þessu.

Fleiri fréttir