Búið að ráða í stöðu aðalbókara
Gengið hefur verið frá ráðningu í starf aðalbókara sveitarfélagsins Skagafjarðar en aðeins tvær umsóknir bárust um stöðuna. Ráðin var Ásta Ólöf Jónsdóttir, viðskiptafræðingur af endurskoðunarsviði HÍ.
-Ásta hefur mikla reynslu og þekkingu á reikningsskilum sem mun nýtast okkur vel. Hún hefur unnið sjálfstætt við bókhald og uppgjör, hjá eftirlitsdeild Skattstofu Reykjanesumdæmis og svo síðustu sextán ár á skrifstofu KPMG hér á Sauðárkróki, segir á heimasíðu sveitarfélagsins. Ásta hóf störf í gær, 1. desember.