Byggt og bætt á Króknum
Fröken sól gægðist fram úr skýjunum í morgun eftir blauta og kalda nótt í Skagafirðinum. Eins og endranær yljaði hún alla þá sem spókuðu sig úti er blaðamaður Feykis var á ferðinni um Krókinn í morgun. Ýmislegt var að gera hjá iðnaðarmönnum sem hamast við að byggja, laga og bæta en meðfylgjandi myndir sýna þá við sláturhúsið, nýja fiskþurrkhúsið, Árskóla, mjólkursamlagið, kaupfélagsstjórahúsið og verknámshúsið svo eitthvað sé nefnt.
.