Cirkus Flik Flak á Sauðárkróki
Á sunnudaginn síðasta sýndi barna- og unglinga sirkusinn Cirkus Flik Flak frá Danmörku listir sínar í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Sirkusinn er frá Óðinsvéum í Danmörku en gerir nú víðreisn á Íslandi og sýnir á höfuðborgarsvæðinu og á Norðurlandi. Sýningar sirkusins vekur ávallt athygli og brugðu sýnendur ekki út af vananum á Sauðárkróki og skemmtu áhorfendum með tilþrifum.
Meðal áhorfenda var Ótthar Edvardsson sem sendi Feyki eftir farandi myndir.
.