Contalgen Funeral og hin spánska Litoral spila á Akureyri

Hin skagfirska eðalhljómsveit Contalgen Funeral spilar ásamt spænsku hljómsveitinni Litoral í Hlöðunni á Akureyri í kvöld. Litoral hefur verið að túra um landið í boði spænskra yfirvalda ásamt því að gera heimildarmynd um förina. En Ísland er fyrsta stopp af þremur, en einnig kemur hún við í Frakklandi og Þýskalandi.

 

Akureyringar og nærsveitamenn ættu ekki að láta þessa tónleika fram hjá sér fara og jafnvel ættu Skagfirðingar og Húnvetningar að bregða sér yfir Öxnadalsheiðina og hlýða á þessar skemmtilegu hljómsveitum.

Tónleikarnir hefjast kl. 21.00 í Hlöðunni, Litla-Garði á Akureyri og kostar ekkert inn.

Fleiri fréttir