Dætur Satans gefa út sinn þriðja disk
Hljómsveitin Dætur Satans með Skagfirðingana Þórólf Stefánsson, Magnús H. Helgason og Gunnar Inga Árnason ásamt Austfirðingunum Óðni Gunnari Óðinssyni og Sigurði Ingólfssyni innanborðs er að gefa út sinn þriðja disk sem einfaldlega heitir Dætur Satans III.
Diskurinn inniheldur tíu lög sem flest eru eftir Þórólf Stefánsson en Magnús Helgason á tvö lög og þrjá texta. Aðrir textasmiðir eru Jóhann Sigurjónsson, Davíð Stefánsson, Ögmundur Helgason og Jónas Hallgrímsson. Upptökur fóru fram á Egilsstöðum, Sauðárkróki og í Svíþjóð 2012 og 2013 en diskinn má nálgast í Skagfirðingabúð á Sauðárkróki en einnig væri reynandi að senda skilaboð á Fésbókarsíðu hljómsveitarinnar.
Dætur Satans munu koma fram á VSOT tónleikunum nk. föstudagskvöld í Bifröst og má búast við að eitthvert laganna fái þá að heyrast og jafnvel eitthvað nýrra því upptökur fjórðu plötunnar munu hefjast seinna í sumar, samkvæmt heimildum Feykis.