Dagskrá tileinkuð Þorsteini Erlingssyni

Í tilefni af Degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember verður skagfirski kammerkórinn ásamt 7. bekk Varmahlíðarskóla með dagskrá í tali og tónum sem tileinkuð er Þorsteini Erlingssyni. Dagskráin verður á Löngumýri og hefst kl. 16:00 á morgun, laugardag.

Aðgangur er ókeypis. Skagfirski kammerkórinn býður upp á kaffi, kleinur og konfekt eftir dagskrá.

Fleiri fréttir