Djúpmenn stöðvuðu Stólana
Ekki tókst Tindastólsmönnum að fylgja eftir góðum sigri gegn Haukum í kvöld þegar Stólarnir léku við lið BÍ/Bolungarvíkur fyrir vestan. Niðurstaðan varð 2-0 tap og örugglega ekkert sérstök stemning í rútunni heim.
Það var Alexander Veigar Þórarinsson sem kom heimamönnum yfir eftir stundarfjórðung og í uppbótartíma í síðari hálfleik gulltryggði Daniel Osafu-Badu sigur Djúpmanna.
Með tapinu færðist lið Tindastóls niður í 10. sæti þar sem Fjallabyggðarmenn skelltu Selfyssingum í kvöld, gerðu reyndar sigurmark leiksins þegar þeir voru orðnir tveimur mönnum fátækari - kannski fórnað tveimur peðum fyrir vinningsstöðu!?
Næsti leikur Tindastóls er hér heima á laugardag þegar Leiknir Reykjavík mætir á svæðið.