Doktorsvörn Antoine Millet
Á morgun miðvikudag mun Antoine Millet verja doktorsritgerð sína „Breytileiki hornsíla (Gasterosteus aculeatus), í tíma og rúmi, í Mývatni, Íslandi“. Þó Antoine sé skráður til náms við Háskóla Íslands og vörnin fari fram þar, hefur hann stundað rannsóknir sínar við fiskeldis- og fiskalíffræðideild Háskólans á Hólum, fyrst og fremst undir leiðsögn dr. Bjarna K. Kristjánssonar.
Á vef Háskóla Íslands segir svo, um viðfangsefni Antoine í ritgerðinni: „Líffræðileg fjölbreytni villtra stofna mótast af samspili vist- og þróunarfræðilegra ferla. Þessir ferlar starfa bæði í tíma og rúmi og geta valdið aðskilnaði innan stofna. Mikilvægt er að skilja samspil þessara ferla við tilurð breytileika í erfðum og svipgerð. Framboð auðlinda og afrán eru meðal lykilþátta sem geta stuðlað að þróun fjölbreytni.
Vörnin fer fram í stofu 132 í Öskju og hefst kl 15:00.