Dósa- og flöskusöfnun Unglingaráðs körfuknattleiksdeildar Tindastóls

Næstkomandi mánudag, 2. desember, munu börn og unglingar frá Unglingaráði körfuknattleiksdeildar Tindastóls ganga í hús og safna flöskum og dósum. Samkvæmt tilkynningu frá Tindastóli er á ætlað að þau verði á ferðinni milli kl. 17:00 – 20:00.

„Sé enginn heima, en áhugi á að styðja við starfið hjá krökkunum má skilja eftir poka með flöskum úti við á tröppum með miða, merkt Tindastól. Við vonum að þið takið vel á móti krökkunum. Vilji svo til að enginn komi til þín þennan dag en áhugi á að losna við flöskur má koma með þær í Vörumiðlun þegar flöskumóttakan er opin og láta ágóðann renna til Unglingaráðs kt. 640816-0740 reikn. 0310-26-003900.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir