Dragnótabannið löglegt
Í síðustu viku féll dómur í Hæstarétti þar sem segir að bann við dragnótaveiðum í Skagafirði sem Jón Bjarnason fv. sjáfarútvegsráðherra kom á standist lög. Áfrýjandi taldi að bannið hafi falið í sér ólögmæta skerðingu á atvinnufrelsi hans, en áfrýjandi er útgerðarfyrirtæki í Grímsey sem gerir út skipið Þorleif EA 88.
Það var fyrirtækið Sigurbjörn ehf. sem höfðaði málið gegn íslenska ríkinu og krafðist viðurkenningar á því að hann væri óbundinn af banni við veiðum með dragnót í Skagafirð sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hafði lagt á með reglugerð á grundvelli laga nr. 79/1997 um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Til vara var þess krafist að bannið yrði ógilt. Hæstiréttur taldi að samráð ráðherra við samtök útgerðar- og sjómanna um bannið hefði fullnægt kröfum laga nr. 79/1997 og að umrætt bann hefði átt sér viðhlítandi lagastoð. Bannið hefði verið tímabundið og staðbundið og takmarkað við tiltekið veiðafæri. Stefnandi hefði getað stundað veiðar á svæðum þar sem heimilt var að veiða með dragnót eða með öðrum veiðafærum á því svæði sem bannið tók til. Þótti stefndi því ekki hafa brotið gegn 1. mgr. 75. gr. stjórnarskrárinnar og var því sýknað af kröfum Sigurbjörns ehf.