„Draumur í dós“
„Þetta er bara eins og draumur í dós“ sagði Gísli Árnason, formaður Karlakórsins Heimis, þegar blaðamaður Feykis hitti hann nýkominn af sviði í Hörpu í gær, ásamt kórfélögum sínum og Kristni Sigmundssyni.
Raunar var Gísli frekar raddlítill eftir tónleikana, enda búinn að syngja í Miðgarði kvöldið áður á Sæluvikutónleikum þar sem kórinn kom einnig fram með Kristni. Í gærmorgun kl. sjö var svo haldið af stað með rútu frá Sauðárkróki til að undirbúa tónleikana í Hörpu.
Það var mögnuð stemning í Hörpu og nutu bæði kórinn og Kristinn sín vel í þessu musteri íslenskrar tónlistar. Á annað þúsund manns sóttu þessa stærstu tónleika sem kórinn hefur haldið hérlendis og áhorfendur stóðu upp til heiðurs kórnum og Kristni og klöppuðu upp nokkur aukalög.
Tónleikagestir sem voru á öllum aldri kunnu vel að meta það sem boðið var upp á en á söngskránni voru óperettur í bland við sígild sönglög og settu skemmtilegar kynningar fjögurra kórmanna léttan svip á tónleikana, enda Heimismenn þekktir fyrir glettni og kátínu þrátt fyrir að þeir syngi af fullri alvöru.