Drög að dagskrá Elds í Húnaþingi

Drög að dagskrá unglistahátíðarinnar Elds í Húnaþingi hafa nú, þegar 33 dagar eru í hátíðina, verið birt á vefsíðu hennar, www.eldurhunathing.com, sem hefur fengið andlitslyftingu. Að venju er mikið um dýrðir, svo sem tískusýning, markaður, leikir, paintball, lasertag og fleira. Útvarp Hvammstangi verður svo starfrækt á meðan á hátíðinni stendur. Hér fyrir neðan eru nánari upplýsingar um dagskrárliði hvers vikudags, en hátíðin hefst á miðvikudegi.

Á miðvikudeginum verður opnunarhátíð á hafnarsvæðinu á Hvammstanga þar sem eldurinn verður tendraður, kjötsúpa í boði, sjoppubíllinn á ferðinni og Jóhanna María Oppong sýnir nýja fatalínu. Svo verður hægt að skoða gull og gersemar á nytjamarkaði "gæranna". Kvöldinu lýkur svo með 40740 minningartónleikum í Hvammstangakirkju.

Dagskrá fimmtudagsins hefst á leikjum á Mjólkurstöðvartúninu, við tekur tölvuleikjanámskeið og svo Eldsmót í borðtennis og skotbolta. Fjallaskokk USVH er svo þennan dag og litagleði á Bangsatúni vegna hverfakeppninnar. Um kvöldið verður DJ Óli Geir í félagsmiðstöðinni Órion og endalaus tónlist í félagsheimilinu á Hvammstanga þar sem Melló Músíka fer fram og hljómsveitirnar Valdi og Gamlingjarnir og Famina Fatura taka lagið.

Föstudagurinn hefst mögulega á göngutúr og hinum ýmsu partýjum, s.s. flugdrekapartý og Zumbapartý. Förðunarnámskeiðið er á sínum stað sem og Heimsmeistaramótið í kleppara. Í ár verður svo hægt að fara í paintball og lasertag á Mjólkurstöðvartúninu. Miðtúnsbandið heldur tvenna tónleika í Kirkjuhvammskirkju, Ragnheiður Gröndal verður í Borgarvirki og Hjálmar í félagsheimilinu á Hvammstanga.

Laugardagurinn er með hefðbundnu sniði og hefst á sápurennibraut í Tommabrekku. Við tekur svo fjölskyldudagur á Bangsatúni sem verður væntanlega uppfullur af sól. Þar verður ýmis afþreying fyrir börnin, fyrirtækjakeppni og úrslit í hverfakeppninni kunngerð. Á Mjólkurstöðvartúninu verður sápubolti, paintball og lasertag. Á Hvammstangavelli verður knattspyrnuleikur þar sem Kormákur/Hvöt mætir Snæfelli/Geislanum. Hátíðinni lýkur svo í dansi með hljómsveitinni Buff.

Fleiri fréttir