Dýrð í dauðaþögn besta plata ársins 2012

Hlustendur og starfsmenn Rásar 2 völdu plötu Ásgeirs Trausta, Dýrð í Dauðaþögn, sem bestu íslensku plötuna ársins 2012. Alls fengu 39 íslenskar plötur atkvæði.

Í 10 efstu sætunum voru eftirfarandi plötur:

1. Ásgeir Trausti - Dýrð í dauðaþögn

2. Valdimar - Um stund

3. Moses Hightower - Önnur Mósebók

4. Jónas Sigurðsson & LÞ - Þar sem himin ber við haf

5. Retro Stefson - Retro Stefson

6. Hjaltalín - Enter 4

7. Tilbury - Exorcise

8. Kiriyama Family - Kiriyama Family

9. Pétur Ben - God's Lonely Man

10. Biggi Hilmars - All We Can Be

Umsögn um Dýrð í dauðaþögn var birt með fréttinni á heimasíðu Rásar 2. Þar segir:

Ásgeir Trausti – Dýrð í dauðaþögn

Ásgeir Trausti Einarsson er sannarlega nýliði ársins í íslenskri tónlist. Hann kom fyrst fram í Hljómskálanum í fyrravor þar sem hann flutti lagið Sumargestur og eftir það fóru hjólin heldur betur að snúast á hraða sem nýliði í íslenska dægurlagaheiminum hefur ekki náð áður. Fyrsta breiðskífa Ásgeirs Trausta, Dýrð í dauðaþögn, kom út í september í fyrra og seldist í rúmlega 20.000 eintökum á fyrstu 3 mánuðunum sem er metsala hjá nýliða á Íslandi.

Lög plötunnar eru eftir Ásgeir sjálfan en textarnir eru eftir föður hans, Einar Georg Einarsson, og vin hans, Júlíus Aðalstein Róbertsson.

Lögin Sumargestur, Leyndarmál og titillagið Dýrð í dauðaþögn voru öll á listanum yfir vinsælustu lög Rásar 2 í fyrra og Leyndarmál lenti í öðru sæti á þeim lista – en platan Dýrð í dauðaþögn með Ásgeiri Trausta er hins vegar besta plata ársins 2012 að mati hlustenda og starfsmanna Rásar 2.

Ásgeir Trausti er tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2012 sem söngvari ársins og lagahöfundur ársins og fyrir hljómplötu ársins og lag ársins, Leyndarmál. Þar að auki er faðir hans, Einar Georg Einarsson tilnefndur sem textahöfundur ársins.

Fleiri fréttir