E-listinn - Nýtt afl í Húnavatnshreppi
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla
14.04.2014
kl. 15.07
E-listinn – Nýtt afl í Húnavatnshreppi, hélt fund þann 9. apríl að Húnavöllum, þar sem uppstillingarnefnd lagði fram tillögu að framboðslista fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem fara mun fram þann 31. maí n.k.
Fjölmenni var á fundinum og var tillaga uppstillinganefndar samþykkt samhljóða:
- Þóra Sverrisdóttir sjúkraliði og rekstrarfræðingur Stóru-Giljá.
- Jakob Sigurjónsson bóndi Hóli.
- Magnús Sigurðsson bóndi Flögu.
- Ingibjörg Sigurðardóttir búfræðingur Auðólfsstöðum.
- Kristín Rós Sigurðardóttir hjúkrunarfræðingur Tindum.
- Jón Árni Magnússon nemi LBHÍ Steinnesi.
- Sigurður Árnason bóndi og vélfræðingur Syðri-Grund.
- Maríanna Þorgrímsdóttir leiðbeinandi Holti.
- Helgi Páll Gíslason bóndi Höllustöðum.
- Ólafur Magnússon bóndi og tamningamaður Sveinsstöðum.
- Haukur Suska Garðarsson hrossa- og ferðaþjónustubóndi Hvammi.
- Þorbjörg Pálsdóttir bóndi Norðurhaga.
- Maríanna Gestsdóttir bóndi Hnjúki.
- Jóhann Guðmundsson bóndi Holti.