Einherji varð meistari 4. deildar karla á Sauðárkróki - Myndir
Úrslitaleikur 4. deildar karla var leikinn á Sauðárkróksvelli í gær en þar áttust við Berserkir ú Fossvoginum og Einherji frá Vopnafirði en bæði lið höfðu tryggt sér sæti í 3. deild að ári. „Þetta var mun meiri baráttuleikur en maður bjóst við með mörgum spjöldum, tæklingum og brotum. Við hefðum getað skorað fleiri mörk í fyrri hálfleik en nýttum því miður ekki færin. Í seinni hálfleik fórum við heldur snemma að halda fengnum hlut en eftir að annað markið kom var sigurinn aldrei í hættu,“ sagði Víglundur Páll Einarsson, þjálfari Einherja, í samtali við Austurfrétt í gær.
Einherjar voru vel studdir úr stúkunni en milli 50 og 60 stuðningsmenn fylgdu liðinu á Sauðárkrók en ekki heyrðist í neinum sem hvatti sunnanmenn áfram. Kannski erfiðara að keyra suðurleiðina?
Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir frá gærdeginum.
.