Einn fótbrotinn og annar úr mjaðmarlið

Björgunarsveitir í Húnavatnssýslu sóttu slasaðan mann innan og ofan við bæinn Þorgrímsstaði í Vatnsnesi í gær. Samkvæmt heimasíðu Landsbjargar var talið að maðurinn, sem var á göngu, hafi verið fótbrotinn. Ábúendur Þórgrímsstaða komu manninum til aðstoðar og biðu með honum eftir björgunarsveitum.

Björgunarsveitin Húnar, ein af sveitunum voru í þessu verkefni, sótti líka veiðimann í gær sem fór úr mjaðamarlið við Holtavörðuvatn, efst á Holtavörðuheiði. Vatnið er ekki langt frá þjóðvegi 1 þannig að sjúkrabíll komst langleiðina að manninum en björgunarsveitabíl þurfti til að koma honum í hann.

Fleiri fréttir