Einn koss enn og ég segi ekki orð við Jónatan
Leikhópur Ungmennafélagsins Grettis í Húnaþingi vestra frumsýnir í kvöld farsan Einn koss enn og ég segi ekki orð við Jónatan. Höfundurinn er Marc Camoletti sá hinn sami og gerði leikritið Sex í sveit. Leikstjóri er Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir.
Leikritið fjallar í grófum dráttum, um flugfreyjurnar Herdísi, Hafdísi og Hjördísi, ráðskonuna Vigdísi, Jónatan og besta vin hans, Róbert. Jónatan er ekki við eina fjölina felldur og hefur verið að dúlla sér með nokkrum konum en svo fer allt í rugl þegar flugfélagið sem dísirnar þrjár vinna hjá kaupir hljóðfráa farþegaþotu. Og ekki bætir úr skák þegar Róbert lætur sjá sig heima hjá Jónatan nánast fyrirvaralaust.
Með hlutverkin í leikritinu fara:
- Jónatan - Gísli Grétar Magnússon
- Róbert - Þórarinn Óli Rafnsson
- Herdís - Guðbjörg Inga Guðmundsdóttir
- Hafdís - Ingibjörg Jónsdóttir
- Hjördís - Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir
- Vigdís - Guðrún Sigríður Hálfdánardóttir
Aðrir sem koma við sögu við gerð uppsetningarinnar:
- Ljós og hljóð - Páll Sigurður Björnsson
- Smiðir - Ari G. Guðmundsson og Gunnlaugur Guðmundsson
- Förðun - Kristín Arnardóttir
- Málarar - Ingibjörg Jónsdóttir og Sæunn Sigvaldadóttir
Önnur sýning verður á sunnudaginn 27. mars. Sýningarnar hefjsat kl 21:00. Miðaverð er kr 2.000,- Fyrirhuguð er sýning laugardaginn 23. apríl en það verður auglýst betur síðar.
POSI Á STAÐNUM.
Myndir og myndbönd frá æfingum er hægt að nálgast á síðu Húnaþingsbloggsins.
/hunathing.123