Einstaklega vel heppnað kvöld

Skemmtikvöld sem var haldið í Sundlauginni á Hofsósi til styrktar Magnúsi Jóhannessyni, sunnudaginn 24. júlí síðastliðinn, fór einstaklega vel fram. Magnús slasaðist alvarlega í vinnuslysi í júní síðastliðinn og er nú bundinn við hjólastól.

Rúmlega 200 manns mættu á svæðið og lét engin hellidembuna á sig fá, enda allir glaðir að fá rigningu eftir langt þurrkatímabil.

Gísli Einarsson skemmti gestum sem kynnir kvöldsins og stigu á stokk fjölmargir listamenn til að leggja góðu málefni lið. Geirmundur Valtýsson frumflutti lag eftir Þorkel Guðbrandsson, sem samið var um Magga. Alexandra Chernyshova söng tvö lög og Jón Þorsteinn Reynisson frá Mýrarkoti spilaði á harmónikku.

Boðið var upp á ýmis önnur skemmtiatriði og var ermasund m.a. þreytt í fyrsta sinn á Íslandi er sundkappar stungu sér til sunds í úlpum og yfirhöfnum, einnig var happdrætti, bögglauppboð og margt fleira.

Á skemmtikvöldinu söfnuðust 389 þúsund krónur  og sama dag styrkti Jónsmessunefndin á Hofsósi Magnús og fjölskyldu um 100 þúsund krónur.

Valdís Hálfdánardóttir, starfsmaður Sundlaugarinnar á Hofsósi, og einn skipuleggjandi kvöldsins var alsæl með hvernig kvöldið fór fram. Hún vildi koma á framfæri þökkum til allra þeirra fyrirtækja og einstaklinga sem studdu málstaðinn.

Þeir sem vilja styðja fjölskylduna er bent á söfnunarreikning; 0161-15-550279 kt: 110468-3429.

Myndir: Sigrún Heiða Pétursdóttir Seastrand

Fleiri fréttir