Ekki 6990 á jólatónleika Geirmundar
Meinleg villa slæddist með í auglýsingu frá Tískuhúsinu um jólatónleika Geirmundar í Sjónhorninu í dag en þar segir að miðinn kosti 6990. Það er alskostar ekki rétt því hann er einungis á 3500 krónur. Tvennir tónleikar verða haldnir í Miðgarði nk. sunnudag, þeir fyrri klukkan 18:00 og seinni klukkan 20:30.
Jólastjörnunum hefur fjölgað sem koma fram því Helga Rós Indriðadóttir hefur bæst í hóp þeirra Helgu Möller, Ara Jóns, Páls Rósinkranz, Siggu Beinteins, Sigfúsar Péturssonar og afastelpnanna Önnu Karenar og Valdísar að ógleymdum Karlakórs Bólstaðarhlíðarhrepps.
Kynnir verður hinn þekkti útvarpsmaður Þorgeir Ástvaldsson og stórhljómsveit Villa Guðjóns mun sjá um að fylla húsið að jólatónum.
Forsala aðgöngumiða er í Tískuhúsinu og N1 Ábæ á Sauðárkróki og KS í Varmahlíð og gott að ítreka að miðinn kostar 3500 krónur.