Ekki alvarleg meiðsli hjá Helga Frey
-Þeir voru bara góðir, sagði Bárður Eyþórsson eftir leik Tindastóls og Grindavikur í gærkvöldi en gestirnir komu einbeittir á Krókinn og sýndu hvernig körfubolti gerist bestur og lögðu heimamenn að velli með 105 stigum gegn 96. Það leit ekki vel út þegar þrír leikmenn Stólanna voru komnir út af í fyrri hálfleik vegna meiðsla.
-Þeir spiluðu vel og mér fannst svona varnarlega séð við ekki alveg á tánum. En þetta var mjög erfiður leikur og mér fannst þeir bara mjög góðir. Það er bara þannig, sagði Bárður.
Þeir Helgi Freyr, Þröstur og Miller urðu allir fyrir skakkaföllum í fyrri hálfleik en aðeins Miller gat spilað þann seinni.
Helgi Freyr sagði fyrr í dag að líklega væri bara um bólgu að ræða hjá sér í hnénu en hann hefur átt við meiðsli að stríða frá áramótum. -Ég fékk högg á hnéð skömmu eftir áramót og það myndaðist einhver blóðkúla sem hefur ekki farið alveg. Svo fékk ég högg akkúrat á sama stað í gær og gat ekki beitt mér frekar. Hnéð er bara bólgið en ég held að engin liðbönd séu slitin, sagði Helgi sem gerir þó ráð fyrir að vera kominn í lag fyrir bikarleikinn eftir viku. Helgi segist fara í skoðun í dag og þá kemur í ljós hvort sjúkraþjálfinn gefi grænt ljós á að hann fái að spila útileik gegn ÍR á mánudag.