Ekki ljóst hvað olli rafmagnsleysi
Íbúar í Skagafirði ættu nú að vera komnir með rafmagn aftur en straumlaust var víða í firðinum frá því um kl. 13 í dag. Samkvæmt upplýsingum frá Rarik varð alvarleg bilun í aðveitustöð en viðgerð er lokið.
Að sögn Steingríms Jónssonar, deildarstjóra hjá RARIK, er ekki ljóst hvað olli bilun í spenninum. Farið verður í mælingar á spenninum næstu nótt. Þá verði varavélar settar í gang og ættu notendur því ekki að verða varir við rafmagnstruflanir.