Eldað undir bláhimni í alþjóðlega keppni

Skagfirska bókin „Eldað undir bláhimni“ sem tileinkuð er skagfirskri matarmenningu og gefin var út af Nýprenti fyrir síðustu jól hefur vakið mikla athygli bæði innanlands og utan en hún inniheldur rúmlega fjörutíu uppskriftir og fjölda stórglæsilegra ljósmynda af skagfirskri matargerð, náttúrufegurð og mannlífi. Útgefandi bókarinnar hefur þekkst boð um að taka þátt í alþjóðlegri keppni matreiðslu- og vínbóka, Gourmand World Cookbook Awards.

Á hverju ári veitir Gourmand, þeim bókum sem þykja skara fram úr í heimi matreiðslunnar verðlaun, en alls eru 200 matreiðslubækur og 50 vínbækur sem hafið hafa keppni nú. Veitt eru verðlaun í mismunandi flokkum þar sem tekið er tillit til innihalds, prentunar, hönnunar o.fl. Í lokin fer ein bók úr hverjum flokki frá hverju landi í úrslit og að lokum er blásið til mikillar bókamessu Paris Cookbook Fair. Á bókamessunni fá útgefendur tækifæri til að hitta áhrifafólk í matreiðsluheiminum, útgefendur, höfunda, matreiðslumenn og blaðamenn og koma sinni afurð á framfæri.

Um tuttugu og sex þúsund matreiðslubækur eru gefnar út árlega í heiminum og er markmið keppninnar m.a. að hjálpa lesendum og ekki síður bóksölum að finna bestu bækurnar úr öllum þeim fjölda.

Það var Heiðdís Lilja Magnúsdóttir sem ritstýrði bókinni og myndir eru eftir Pétur Inga Björnsson og Óla Arnar Brynjarsson, útgefandi er Nýprent.

Fleiri fréttir