Eldur í Húnaþingi í lok júlí

Eldur í Húnaþingi er bæjarhátíð í Húnaþingi vestra sem var fyrst haldin árið 2003 og hefur síðan þá verið árlegur viðburður. Í ár verður hátíðin haldin dagana 23.-27. júlí. Framkvæmdastjórar hátíðarinnar í ár eru Hulda Signý Jóhannesdóttir og Gunnar Ægir Björnsson.

Árið 2012 var undirritaður samningur til fjögurra ára milli hátíðarinnar, Húnaþings vestra, Landsbankans Hvammstanga, KVH og Sláturhúss KVH um árlegan styrk árin 2012-2015 svo unnt sé að ráða verkefnastjóra við hátíðina.

Öll önnur vinna við undirbúning hátíðarinnar er unnin í sjálfboðavinnu af íbúum í héraðinu. Margt fólk úr ólíkum áttum hefur komið að skipulagningu hátíðarinnar ár hvert og hafa margar skemmtilegar og frumlegar hugmyndir litið dagsins ljós. Samt sem áður hefur ákveðin hefð skapast í kringum hátíðina og eru þar ákveðnir viðburðir sem skipað hafa sér fastan sess.

Fleiri fréttir