Enn fleiri bækur á Bókamarkaðnum í Safnahúsinu

Bókamarkaðurinn í Safnahúsinu stendur enn og í dag bætist við töluvert af bókum. Markaðurinn er opinn daglega frá kl. 13-17. Honum lýkur nk. sunnudag.

Í fréttatilkynningu frá bókasafninu eru nefndar nokkrar bækur sem eru á bókamarkaðnum, s.s. nokkrar bækur eftir Guðrúnu frá Lundi, Göngur og réttir I-V, frumútgáfa, Forystufé, Á refaslóðum, Hárkarlalegur og hákarlamenn, Sögur og ævintýri Astrid Lindgren, Hestar í norðri I-IV, Lukku-Láki, Svipir og sagnir, Hlynir og hreggviðir og margt annað góðgæti.

 

Fleiri fréttir