Evrópumeistarar heimsækja Krókinn
Í dag fimmtudag munu stelpurnar í Gerplu sem eru núverandi Evrópumeistarar í Hópfimleikum verða staddar á Sauðárkróki. Er viðkoma þeirra hér liður í ferð þeirra um landið þar sem hópurinn mun kenna og sýna fimleika. Mun sýningin fara fram í Síkinu á milli klukkan 16 og 18.
Í tilkynningu frá hópnum segir; Við viljum bjóða þér að koma og verða vitni að stórkostlegri fimleikasýningu. Í framhaldi af fimleikasýningunni ætlar hópurinn að halda stuttar æfingabúðir þar sem börnum og unglingum gefst tækifæri á að læra grunnæfingar í fimleikum.“
Fimleikahringurinn er samstarfsverkefni Olís, Gerplu og UMFÍ