Færri starfsmenn í sláturtíð
Stefnt er á að hefja slátrun hjá Kjötafurðastöð KS á Sauðárkróki nk. þriðjudag 25. ágúst og áætlað að sláturtíðin standi fram undir lok október sem ræðst að framboði sláturfjár. „Það skiptir miklu máli að ná góðri nýtingu á afkastagetu í slátrun á hverjum tíma og samfelldri sláturtíð. Í haust byrjum við aðeins fyrr en venjulega og förum hægar af stað til að þjálfa upp starfsfólk,“ segir Ágúst Andrésson, forstöðumaður KKS.
„Það er ljóst að við fáum ekki starfsfólk frá Nýja Sjálandi í haust eins og verið hefur undanfarin sextán haust og því þarf að þjálfa upp annað fólk í þær stöður. Það gengur vel að manna húsið en meira krefjandi nú en áður að koma fólki til starfa, vegna sóttvarnaaðgerða á tímum Covid,“ segir Ágúst en flestir koma frá Pólandi og margir þeirra hafa verið áður hjá KKS.
Vegna Covid áhrifa verður öll vinnsla einfölduð og segir Ágúst að kappkostað verði að láta slátrun ganga vel fyrir sig og frágang á aðalafurðum. „Við munum í ljósi aðstæðna einfalda vinnslu hjá okkur og þetta þýðir að við reynum að vera með einfaldari úrvinnslu í úrbeiningu og pökkun sem og vinnslu á hliðarafurðum í haust. Þannig verðum við með eitthvað færri starfsmenn í haust heldur enn undanfarin haust. Aðal málið er að komast af stað og halda starfseminni gangandi án þess að lenda í því að upp komi Covid smit meðal starfsfólks sem gæti raskað starfseminni.“
Eftirtalin atriði gilda fyrir innleggjendur og þjónustuaðila í Kjötafurðastöð KS á komandi hausti:
Aðgangur að afurðastöðunni verður einungis heimilaður starfsfólki. Þetta þýðir að bændur geta ekki komið og framvísað sínu fé, né verið viðstaddir kjötmat. Eins og undanfarin ár þá eru vigtarseðlar og afreikningar komnir inná viðskiptavef KS samdægurs eða um leið og þeir eru tilbúnir.
Flutningur á sláturfé. Gæta þarf að tveggja metra reglunni þegar fé er sótt heim á bæi, sem og þegar því er skilað í sláturhúsrétt. Flutningsaðili má ekki koma inn í réttina. Starfsfólk sér um móttöku og gætir að tveggja metra reglunni í öllum samskiptum við flutningsaðila. Hvetjum við innleggjendur að hringja eða senda tölvupósta með frekari upplýsingum um heimtöku.
Mötuneytið. Verður einungis fyrir starfsfólk afurðastöðvarinnar og verður fyrirkomulag eftir settum tilmælum sóttvarnalæknis.
Skrifstofur afurðastöðvarinnar eru lokaðar aðgengi fyrir aðra en starfsfólk. Öll samskipti við starfsfólk þurfa að fara í gegnum síma eða tölvupóst. Þetta á við um samskipti við bændur, bílstjóra og aðra sem þjónusta starfsemina.
Afhending heimtöku. Heimtaka verður með svipuðu sniði og verið hefur. Þeir sem sækja, hringja á undan sér og fá afhendingu út fyrir dyr afurðastöðvarinnar. Mikilvægt að virða tveggja metra regluna.
Starfsfólk. Í haust fáum við eins og verið hefur erlenda starfsmenn aðallega frá Pólandi. Í þetta sinn koma ekki Nýsjálendingar og því munum við þurfa að þjálfa upp nýtt fólk í þær stöður. Búast má við að það komi eitthvað niður á afköstum hjá afurðastöðinni til að byrja með. Starfsfólki verður gert að vera með grímur þar sem ekki verður viðkomið tveggja metra reglunni. Reynt verður eftir fremsta megni að skipta upp starfssvæðum og halda aðskilnaði milli svæða.
Sjá nánar á KS.is