Fært um Holtavörðuheiði á ný
Um 120 manns urðu strandaglópar á Laugabakka og Reykjaskóla í Hrútafirði í nótt þegar Holtavörðuheiðin var lokuð vegna veðurs. Opnað hefur verið um heiðina á ný.
Rúv.is greinir frá því að á milli 60 og 70 manns gistu í Reykjaskóla í Hrútafirði í nótt, upphaflega var gert ráð fyrir um 200 manns en þónokkur fjöldi ákvað að fara yfir Laxárdalsheiðina í gærkvöldi. Þá gistu milli 50 og 60 manns á Laugabakka. Þar var Elísa Sverrisdóttir, gjaldkeri Rauða krossins á Hvammstanga, og sagði hún í samtali við Rúv að vistin þar hafi verið góð .
Samkvæmt vef Vegagerðarinnar er orðið fært um Holtavörðuheiði, hálka, snjóþekja eða hálkublettir á Norðurlandi og sumstaðar skafrenningur. Þæfingsfærð er á Siglufjarðarvegi.
Á Ströndum og Norðurlandi vestra er minnkandi sunnanátt, 3-8 m/s eftir hádegi og dálítil él. Frost 1 til 6 stig. Veðurstofan varar við stormi seint á morgun, þá gengur í austan og suðaustan 15-23 með snjókomu eða slyddu og hlýnandi veðri.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á miðvikudag:
Suðlæg eða breytileg átt, víða 5-10 m/s. Él víða um land, en samfelld snjókoma eða slydda austast fram eftir degi. Frost 0 til 5 stig, en kringum frostmark með A-ströndinni.
Á fimmtudag:
Suðaustlæg átt, 5-13 m/s og snjókoma eða slydda sunnantil en úrkomulítið norðan heiða. Vaxandi SA-átt síðdegis, 15-20 m/s og talsverð rigning eða slydda um kvöldið einkum SA-til. Hiti um frostmark, en 0 til 4 stig syðst.
Á föstudag:
Suðlæg átt og lítilsháttar snjókoma norðantil fyrir hádegi en gengur í suðaustan storm seinnipartinn með rigningu, einkum S- og V-lands og hlýnar.
Á laugardag:
Útlit fyrir suðlæga átt og rigningu, einkum um landið S-vert. Hiti 2 til 8 stig.
Á sunnudag:
Fremur hvöss sunnanátt, rigning og hlýnandi en úrkomulítið NA-til.