Farsæl öldrun
feykir.is
Skagafjörður, Vestur-Húnavatnssýsla
03.09.2015
kl. 15.37
Félag eldri borgara Húnaþingi vestra og Landsamband eldri borgara, héldu fræðslufund um „farsæla öldrun“ og hagsmunamál eldri borgara, í Nestúni Hvammstanga síðast liðinn mánudag. Mæting á fundinn var með ágætum og umræður líflegar.
Frummælendur á fundinum voru Haukur Ingibergsson formaður LEB, Jóna Valgerður Kristjánsdóttir fulltrúi í Öldrunarráði Íslands og fv. formaður LEB og Guðný Hrund Karlsdóttir sveitarstjóri Húnaþings vestra. Að loknum framsöguerindum fóru fram almennar umræður.